Harðfiskur á röngum stað og röngum tíma
Hver sá sem kom með harðfisk upp á bókó -er vinsamlegast beðinn um að pakka honum vel inn í poka og snæða hann aðeins í matsalnum.
Ég er að kafna hérna......
Súkkulaði.... draumur hverrar konu !!!!
Hver sá sem kom með harðfisk upp á bókó -er vinsamlegast beðinn um að pakka honum vel inn í poka og snæða hann aðeins í matsalnum.
Hætt allri hollustu. Ét nammi eins og svín og sit á rassinum frá 8 til 23 og ljótleikinn ræður ríkjum - já það er PRÓFATÍÐ.
Held að þetta sé 5 vikan - annars er ég farin að missa töluna. Seinasta mæling kom EKKI nógu vel út - hafði meira að segja farið aðeins upp í fituprósentu - þannig að núna er öðrum brennslu degi bætt inn í prógrammið. Vildi það frekar heldur en að lengja upphitunina. Ætla nú ekki að vera allan daginn í ræktinni. En núna er bara tekið á því. Mín hleypur eins og mófó næstu tvær vikur og svo verður klipið í spikið aftur og gáð hvort ég hef náð að kreista eitthvað af lýsinu í burtu.
Mig langar í NAMMI........
Í dag- þann 09.09.06 fæddist drengur - sonur þeirra Berglindar og Hlyns. Áttu þau fyrir dótturina Jóhönnu sem er fædd 10.10.03.
Jæja - þá er maður búin með eina viku og vika tvö að byrja. Að vísu var seinasta vika ekkert erfið matarlega séð en úfff....harðsperrur dauðans - ég vissi ekki að hægt væri að fá svona sársaukafullar harðsperrur - en ætli það skili sér ekki í meiri vöðvum og stinnleika ;)